Auðkenni00001
HeitiBarnaskólinn
Mynd
MyndatextiKCM 196. Myndin er tekin af Kristjáni C. Magnússyni.
GötuheitiAðalgata
Götunúmer2
Póstnúmer550
StaðurSauðárkrókur
Eldri staðsetning 
Byggingarár1908
HönnuðurRögnvaldur Ólafsson (1874-1917)
SmiðurSteindór Jónsson (1879-1953)
Stærð í fermetrum220.2
Fastanúmer213-1093
ByggingarefniTimbur og járn
ÁgripÁrið 1908 var reist nýtt barnaskólahús á Sauðárkróki. Áður hafði verið kennt í húsinu Baldur við Aðalgötu 24 sem seinna varð að Verslun Haraldar Júlíussonar. Barnaskólinn var settur í fyrsta sinn í þessu húsi 19. október árið 1908.
Kennt var í húsinu fram til ársins 1948 en ný skólabygging reis við Freyjugötu árið áður.
Uppfrá því fékk húsið nýtt hlutverk og hýsti það bæjarskrifstofur eftir að skólakennslu var hætt þar. Ýmis önnur starfsemi hefur verið í húsinu, eins og tannlæknastofa Péturs Ólafssonar, teiknistofa fyrir arkitekt, kosningaskrifstofa, skrifstofur fyrir héraðsfréttablaðið Feykir, prentsmiðjan SÁST og upplýsingamiðlun.

Undir lok 20. aldar var húsið endurbyggt í upprunalegri mynd og var lokið við þá endurbyggingu árið 2000. Í febrúar sama ár hóf Náttúrustofa Norðurlands vestra starfsemi í húsinu. Síðar fékk Minjavörður Norðurlands vestra aðstöðu þar.
Árið 2013 lauk starfsemi Náttúrustofunnar í húsinu og nokkru áður hafði Minjavörður flutt sig í Aðalgötu 23, Villa Nova.

Tilbrigði við norsk-íslenska gerð - lágris-gerð.

HeimildirHéraðsfréttablaðið Feykir.

Kristmundur Bjarnason: Saga Sauðárkróks, fyrri hluti fram til ársins 1907. Sauðárkrókskaupstaður, 1969, bls. 180.

Kristmundur Bjarnason: Saga Sauðárkróks, síðari hluti I, 1907-1922. Sauðárkrókskaupstaður, 1971, bls. 287-291.
SkrásetjariGísli Þór Ólafsson
Dagsetning skráningar2014/09/30
WGS84 N65,749982
WGS84 W-19,650051